Gamalt og nokkrar nýjar
Ég hef verið óhemju latur í því að sinna teikningunni og eiginlega öllu sem tengist því að vera andlegur og næra þarmeð sálartetrið. Ég læt þessar myndir samt flakka - þær nýjustu efst. Þetta er skítlélegt í heildina - stíft kúlupennakrot mestmegnis, en það má alltaf skoða þetta til að læra af og reyna að bæta sig. Ég veit að ég var að verða fastur í kúlupennanum og vil helst losna undan honum. Það stendur til bóta. Myndin sem ég gerði í dag af Einari gefur mér smá von um að eitthvað skárra sé að vænta og ekki má gleyma sólinni síðustu daga sem lætur allt gott brjótast fram.
Einar Guðjónsson il patrone sestur úti á Mokka til að spjalla
Hér eru Finnur Arnar, Hilmar í Morkinskinnu og svo Ríkharður Valtingojer í sólinni fyrir utan Mokka
Bjarni Bernharður les fyrir okkur úr nýju ljóðabókinni sinni "Undir Tjaldhimni Veruleikans"
Gluggað í tímarit
Á Mokka
Fín frú og skáldið á horninu.
Í kjól og lopapeysu
Náttúrunnar skilningsljós vinna verkefni um Descartes á Gráa Kettinum
Þjónustustúlkan á Gráa Kettinum
Jón Axel á Mokka
Les sálarfræði á Mokka
Hafsteinn Austmann
Vinkonur á Kaffi Tári í janúar
Frosti vippaði sér af hjólinu og leit við á kaffihúsið.
3 ummæli:
Nú er ég glöð, eins og alltaf þegar ég skoða fallegu myndirnar þinar: )
Svona margar í einu, þetta er
-nánast- eins og að vera kominn niðreftir sjálfur.
mbk, Tryggvi
Ég sé að athugasemdin sem ég sendi þér hefur ekki náð alla leið. Hún var nú bara e-ð á þá leið að ég hefði glaðst yfir að sjá fleiri teikningar, en svo fór ég að spjalla við e-n Tómas vin minn á andlitsbókinni... : )
Skrifa ummæli