laugardagur, 13. febrúar 2010

Vítin eru til þess að varast!

Aftur fell ég í þessa lúmsku gryfju og reyni að gera fallega mynd í stað þess að sjá betur hvað blasir við manni og ná því bara (!) með tilfinningum einum saman. Fyrsta skrefið er að átta sig, en svo er erfiðara að gleyma sér. Ég læri þetta kannski smátt og smátt...

Æðislegt að fá vöfflur og kakó á Mokka! (Fía, Vera og Líneik Þula)

þriðjudagur, 9. febrúar 2010

Í kyrrðinni

Heimaverkefni á Mokka síðdegis í gær.

laugardagur, 6. febrúar 2010

Kreppan er minn tími.

Smá experiment hefur staðfest það sem mig grunaði að þeim mun meira sem ég teikna og hangsa þeim mun betur gengur mér að leysa þau verkefni tæknilegs eðlis, sem liggja fyrir - og aldrei meira að gera en í svokallaðri kreppu. Kannski af því að hype og fake er ekki hluti af innihaldslýsingunni. En stefnan er s.s. að teikna og mála meira á þessu ári, og þá verður líklega líflegra á þessari síðu.

Eftirmiðdegi á Mokka.


Hádegistesopi

föstudagur, 22. janúar 2010

Engar Litháenskar fyrirsætur hér!

Hér er smá dótarí sem dútlað var við við upphaf nýs árs og nýs áratugar.
Fyrst kemur það saklausasta og svo má fólk fara að halda fyrir augun...

Fantasía til að hugsa ekki um hitt...


Svo eru það konurnar...

Hollensk blómarós á Mokka í gær


Stúlkan með hárið á Gráa Kettinum


Nærgöngull við njósnastarfsemi á Mokka...


Ásgeir og Lúlli sem teikna hjá CCP kíkja á Mokka til að fínteikna fígúrur. Við Ásgeir sátum á Mokka fyrir 6 árum þegar hann var að byrja að hanna geimskipin fyrir Eve Online. Nú teiknar hann það sem hann hefur alltaf langað til...

Lúlli teiknar skrítna gamla álfa



Ásgeir teiknar Saxa með bláu blýi


Pétur hennar Stínu les Moggann


Svo kemur syndauppgjörið:

Allt fyrir Evu og fegurðina! (Ljósmynd Ingó)


Að lokum er skýringarinnar á fyrirsögninni að finna í þessu myndbandi.
Best að halda áfram að vinna....

þriðjudagur, 5. janúar 2010

Í upphafi nýs árs

Á mokka um hádegi

föstudagur, 1. janúar 2010

Nýtt ár 2010!

Áramótasjálfsmyndin (9 x 14 cm)


Eins og sjá má er ég bara bjartsýnn, þrátt fyrir að skeggið sé að fara út í einhverja vitleysu.. kynni einhverjum að finnast. Myndin er í raun mildari í tónum, en hún skannast inn og verður svolítið hörð, líklega út af pappírnum.

Tryggvi kominn til landsins og auðvitað mættur á kaffihúsið í fyrradag :)

Tryggvi Edwald þjáningarbróðir í vísindum og listum.

þriðjudagur, 29. desember 2009

Season Greetings!

Í gærkvöldi, þar sem ég sat á bókakaffinu í Eymundson á Skólavörðustíg, leyfði ég mér að hugsa eitt andartak ekki um tækni, heldur fór að spá í áramótakveðju frá mínu litla tæknifyrirtæki....hvernig skildi hún nú vera?

Þá varð þetta til:






Raðaði þessu myndum svo saman og úr varð þetta:



2010 Season Greetings everyone!

þriðjudagur, 22. desember 2009

Hinn sterki svipur

Halla sat fyrir á ömmumynd í morgun.


Experiment með bakgrunnslit


Japanskar vinkonur á Mokka


Spáð í umönnun barna á leikskólum..

fimmtudagur, 17. desember 2009

Ne touchez pas..

Frönsk stúlka á Mokka í hádeginu

Grófar skissur....

.. gerðar með mistækum kúlupenna.



mánudagur, 14. desember 2009

Guðrún sat fyrir í morgun

Grísk rómversk gyðja


Á meðan allt hrynur á Íslandi má t.d. spekúlera hvar í USA væri gaman að búa!

Nothing is as scary as a blank piece of paper!

In Iceland, it does happen, but very rarely that one sees other people draw. But usually you find out they are foreigners. My visual artist friends, Kalli Kalde and Peeter Krosmann from Estonia were not shy to experiment with new tools and did these striking likenesses of me - Mamma mía!



Peeter didnt take long.
Reminds me of some character from "Wind in the willows" or ?

Kalli experimented with brushpen
and coffee which she liked very much!

Here are some other pictures done of me recently:

Jói Vald gerði þess á góðri stund á Boston nú í haust



Kristbergur rumpaði þessu af á sekúndubroti

Aðalsteinn Ingólfsson á þetta líka til!

Scary stuff!

þriðjudagur, 8. desember 2009

Halldór...

spáir í uppruna orða á Mokka í kvöld

miðvikudagur, 2. desember 2009

Fyrsta Ömmumyndin þessi jól..

Nína reið á vaðið, og þrátt fyrir að hún hafi misst af fríinu sínu, þá var það ekki alveg til einskis.

Nína Mokkamær situr fyrir á Ömmumynd á Mokka í hádeginu.


Bensi á kaffihúsinu: "Þú ert ekki nógi vel gefinn Ponsi til að skilja heimspeki.


Vinkonur á Mokka.

mánudagur, 30. nóvember 2009

Meira svipað...

Þessi stúlka yfirgaf kaffihúsið áður en ég náði að lita hinar krítísku rauðu melódíur, sem hefðu látið þessa mynd syngja!


Pjetur Hafstein skeleggur á kaffihúsinu


Kristín Martha leiðréttir síðustu straumfræðiverkefni ársins

mánudagur, 23. nóvember 2009

Nokkrar nýjar

Mamma með sína haukfráu sjón


Geir Svansson á Mokka um helgina


Staldrað við á Mokka

þriðjudagur, 17. nóvember 2009

Ort á Mokka

Stilli bein.. eins og Dagur Sigurðarson hefði sagt.

Eiginlega er betra að mæta aðeins á eftir köllunum, fastagestunum, svona upp úr eitt - þá er oft betra að einbeita sér. Át mitt chiabatta með Gorgonzola frá Ostabúðinni og tómat. Í desert voru súkkulaðitrufflur einnig úr Ostabúðinni sem Guðný fastagestur bauð. Bjarni Bernharður sveif svo inn á kaffihúsið og settist hjá mér. Það var frjó stund. "Það er gæfa hvers manns að verða útskúfaður. Þá reynir á það hvað í honum býr". Ég potaði þessa mynd á meðan Bjarni óf ljóð um "ekkert" sem allt fæðist úr. Á næstu borðum voru háværir egóistar að tala í farsíma.. Þá varð þessi til:

Í glugga kaffihússins er lítill gulur miði.
Á honum stendur skýrum stöfum:
Hundar bannaðir
einnig orkusugur.


Nýju stúlkurnar á Mokka eru til í að sitja fyrir á svokölluðum "ömmumyndum" eins og ég gerði í fyrra. Eina skilyrðið er að þær gefi ömmu sinni myndina í jólagjöf. Myndirnar frá því í fyrra; sjá desember og einnig janúar og febrúar á þessu ári. Þetta heldur mér í formi, en sjónin er ekki eins góð og hún var. Spurning hvort ég þurfi ekki að stækka formatið. Kemur í ljós - þetta verður allavega spennandi!

þriðjudagur, 10. nóvember 2009

Tilraunir til tilvistarréttlætingar...

Halldór Halldórsson rifja upp nöfnin á Fossunum.


Í hádeginu varð ég frá að hverfa - hefði verið gaman að lita þessa.

þriðjudagur, 3. nóvember 2009

Experimental jottings

Ragnar á Mokka um kvöldmatarleitið (Kaffi og vatnslitir)


From Reykjavik writing workshop - A. Rawlings, Kristín Anna, Jón Bjarki and a handful of hands 'translating' phonetically.

sunnudagur, 1. nóvember 2009

Ný markmið

Eina leiðin til að bregðast við ástandinu er að setja sér ný markmið - hörð og miskunnarlaus.

Hlíf Þorsteins á Mokka í hádeginu. Kaffi og vatnslitir. Við Dagur Sigurðarson gátum rætt endalaust um Prussian bláan -
Hversu vandmeðfarinn hann væri... Eina leiðin til að ná hári þessarar konu er að nota prussian segi ég.
Ánægður með ljósið í þessari mynd... La magie de la lumière




Gunnar S. með selskinnshúfuna sína og staf kíkti á Mokka

Ragnar á Mokka