laugardagur, 24. október 2009

Fyrsti vetrardagur

Hrönn fékk sér kaffibolla eftir kjötsúpuna á Skólavörðustígnum.


Hrönn Håkansson

fimmtudagur, 22. október 2009

Contrasts

Varð að teikna þessar stúlkur, og gleymdi stund og stað þartil ég sat einn fyrir allra augum með pensilinn og spesið.


Vala Védís og Katla

föstudagur, 16. október 2009

Teikningar kvöldsins á Boston



Paul Nathan

Jóhann Valdimarsson


Jóhann Torfason

miðvikudagur, 14. október 2009

Kaffinu slett á pappírinn



Hilmar Einarsson

Sveinn Ólafsson

fimmtudagur, 8. október 2009

Melchior

Frábærir tónleikar hjá Melchior á Rosenberg í gærkvöldi. Gerði tvær skissur við kertaljós á servéttu.



Snillingarnir Karl Roth

og Hróðmar Sigurbjörnsson

miðvikudagur, 7. október 2009

Mynd dagsins

Mokka í hádeginu

þriðjudagur, 6. október 2009

Breakfast at Mokka

Dundaði mér við Ciabatta, ost og tómat á Mokka í morgun

mánudagur, 5. október 2009

Center of attention

Örk staldraði við aðeins lengur...

föstudagur, 2. október 2009

föstudagur, 25. september 2009

Mokka today



Mokka composition

Konan með fallegu hendurnar

fimmtudagur, 24. september 2009

Tilraun

Skotta á Mokka

þriðjudagur, 22. september 2009

Morguntesopi

Í haustbirtu á Mokka (vatnslitir)

sunnudagur, 20. september 2009

Rólegt á Mokka

Náði ekki Björk í þetta sinn. Næ henni kannski næst...

fimmtudagur, 17. september 2009

Í Odda

Alaric Hall flytur fyrirlesturinn "The Earliest History of Elves"

þriðjudagur, 15. september 2009

Of svipaðar myndir

Er ég að festast í þessum stíl? Vona ekki. Kenni nærtækustu verkfærunum um - handhægast er að grípa í Tiger kúlupennann og pensilinn þegar eitthvað markvert ber fyrir augu...

Fréttaþulan og vinkona á Mokka




þriðjudagur, 8. september 2009

Loksins eitthvað nýtt....

... og bara dágóður slatti. Auðveldara hefði nú verið að setja þetta inn jafnóðum, en bara hef ekki mátt vera að. Set nýjasta fyrst og elsta síðast.

Steinunn að hlusta á ljóð nú í kvöld


Servéttufuglinn varð til í einhverri taugaveiklun á Mokka í dag. Hann gat í alvörunni flogið!
Hér er svo smá tilraun til að ná þessu sem kemur alltaf jafn flatt uppá mann.. fjallið og sjórinn svo nálægt. Tókst ekki í þetta sinn.

Horft niður smiðjustíg


Einhvernveginn finnst mér að þessi maður hljóti að vera gestur á Bókmenntahátíðinni, en það er bara gisk.

Á Mokka í morgun


Viðbót 15. sept - Ég var hálf svekktur að hafa ekki náð að sýna þessum manni myndina áður en hann vatt sér út úr kaffihúsinu. Nú vill svo skemmtilega til að ég fékk email frá honum þar sem hann kynnir sig og segist hafa haft upp á þessu bloggi mínu og séð myndina! Lítill er nú heimurinn. Það skal því leiðrétt að þetta er mynd af Cyril Chapman frá Birmingham og snerist heimsókn hans til íslands um erfðafræði í krabbanmeinsrannsóknum - hann var s.s. ekki á bókmenntahátíðinni :)

Nokkrar skissur urðu til á Mokka í gær:

Bjarni Bernharður, Pjetur Hafstein og Daði Guðbjörns spá og spekúlera


Guðjón Kristinsson sögumaður og hleðslumeistari


Í sól við gluggann


Hér eru svo nokkrar misjafnar myndir frá Rosenberg á Jazzhátíð, Melodica hátíð og blúskvöldi í ágúst:











Dóri Braga tekur magnað sóló!


Kristín og Elínborg á ljóðahátíð Nýhil í ágúst

sunnudagur, 23. ágúst 2009

Kvöldbirta

.. af svölum Babaloo á Skólavörðustíg

Nokkrar skissur frá ljóðahátíð NÝHIL 2009

Pelle Sigsgaard og Arngrímur Vídalín


a. rawlings


Ingólfur Gíslason


Hildur Lilliendahl


Cia Rinne


Valur Antonsson


Vivek Narayanan

þriðjudagur, 18. ágúst 2009

Frá Jazzhátíð

Set inn þessar tvær servéttuskissur þó þær séu ekki húsum hæfar. Mislukkuð experiment.

Óli Gunn

Viðfjarðarundrin á Rosenberg

laugardagur, 8. ágúst 2009

Í miðjum gay-pride tryllingnum.

Við Héðinn áttum í dag tjáskipti í formi ljóðabrots og myndar:

Héðinn Unnsteinsson fyrir utan Mokka


Dregur línur dropum úr
drátthagur að vanda.
Tómas kvikur tendrar flúr,
með töfrum beggja handa.
(H.U.)