Að treysta...
Þrátt fyrir að blekbyttan sé í vasanum og einnig nýjar olíukrítar, þá held ég áfram að vinna mestmegnis í línu - kannski vegna þess að ég treysti ekki mótífinu. Finnst ég ekki getað leyft mér að byrja öðruvísi en að krota útlínur... Legg ekki í að skoða heildina fyrst, einfalda og vinna svo smátt og smátt í átt að smáatriðum... sem verða miklu áhrifameiri ef þau koma eðlilega í stað þess að strax krota þetta svona. Jæja - svona er þetta núna. Verð vonandi sterkari á svellinu fljótlega og hlakka til að treysta aftur á lífið.
Meistari Jóhann Axelsson segir Páli á Húsafelli frá...
Vinkonur á Kaffi tári
Gluggað í bók á Kaffitári
Klárar og skemmtilegar á Kaffitár
Á Súfistanum Eymundsson laugarvegi nú í kvöld
Á Súfistanum Eymundsson laugarvegi nú í kvöld
(Viðbót 7.1.2012) Hér er svo ein mynd sem gleymdist frá þessu tímabili (reyndar gerð daginn fyrir fyrsta uppskurð!)
Hjálmar (Datamarket) og Þórlindur Kjartansson spá í úrvinnslu gagna á Kaffitári...
3 ummæli:
Gaman að hitta þig Tómas. Flottar myndir að vanda.
Þú gerir allt svo vel. Þín Skotta.
Frábærar myndir. Gaman að detta inná síðuna þína. kær kvðeja Jóhanna Þórhallsd.
Skrifa ummæli