Loksins eitthvað nýtt....
... og bara dágóður slatti. Auðveldara hefði nú verið að setja þetta inn jafnóðum, en bara hef ekki mátt vera að. Set nýjasta fyrst og elsta síðast.
Steinunn að hlusta á ljóð nú í kvöld
Servéttufuglinn varð til í einhverri taugaveiklun á Mokka í dag. Hann gat í alvörunni flogið!
Hér er svo smá tilraun til að ná þessu sem kemur alltaf jafn flatt uppá mann.. fjallið og sjórinn svo nálægt. Tókst ekki í þetta sinn.
Horft niður smiðjustíg
Einhvernveginn finnst mér að þessi maður hljóti að vera gestur á Bókmenntahátíðinni, en það er bara gisk.
Á Mokka í morgun
Viðbót 15. sept - Ég var hálf svekktur að hafa ekki náð að sýna þessum manni myndina áður en hann vatt sér út úr kaffihúsinu. Nú vill svo skemmtilega til að ég fékk email frá honum þar sem hann kynnir sig og segist hafa haft upp á þessu bloggi mínu og séð myndina! Lítill er nú heimurinn. Það skal því leiðrétt að þetta er mynd af Cyril Chapman frá Birmingham og snerist heimsókn hans til íslands um erfðafræði í krabbanmeinsrannsóknum - hann var s.s. ekki á bókmenntahátíðinni :)
Nokkrar skissur urðu til á Mokka í gær:
Bjarni Bernharður, Pjetur Hafstein og Daði Guðbjörns spá og spekúlera
Guðjón Kristinsson sögumaður og hleðslumeistari
Í sól við gluggann
Hér eru svo nokkrar misjafnar myndir frá Rosenberg á Jazzhátíð, Melodica hátíð og blúskvöldi í ágúst:
Dóri Braga tekur magnað sóló!
Kristín og Elínborg á ljóðahátíð Nýhil í ágúst
1 ummæli:
Gott að þú ert kominn í gang ..
Servíettufuglinn er góður.
Kominn út í "Mixed Media"!
Þú hefur greinilega verið hrifinn af gítarsólóinu, með svona litsterkan gítar, minnir á mynd Kurozawa 'Himinn og Helvíti'
(Tengoku to Jigoku) sem er svarthvít, nema lykilatriði -rauði þráðurinn, ef svo má segja- í myndinni er rauður reykur sem birtist undir lokin.
Skrifa ummæli